Eftir Byggingafélagið Bakki 07 Feb, 2023
Núna eru liðnir 34 mánuðir síðan Byggingafélagið Bakki hóf framkvæmdir i áfanga IV í Helgafellshverfi. Á þessum tíma erum við búnir að afhenta 53 fullbúnar íbúðir í 7 íbúðaverkefnum við Liljugötu 1, 3, 5 og 7 og Liljugötu 2,4 og 6. Verkefnin sem við erum byrjaðir að reisa núna eru bygging raðhúsa við Liljugötu 9-25, Liljugötu 8-24, Huldugötu 1-13 og Lóugötu 2-22. Samtals eru þetta 36 raðhús í byggingu, þau minnstu eru 106 m2 og þau stærstu 190 m2.
Eftir Byggingafélagið Bakki 22 Oct, 2020
Núna hefur Byggingafélagið Bakki ehf reist tvö tveggja hæða fjölbýlishús við Liljugötu 1 og 3 í áfanga IV í Helgafellshverfi. Í hvoru húsi verða fimm íbúðir. Á jarðhæð verða tvær 106 m2, 3-4ra herbergja endaíbúðir með sérgarði. Á annari hæðinni verða tvær 106 m2, 3-4ra herbergja endaíbúðir og svo 65 m2 2ja herbergja íbúði í miðjunni. Eru þetta sambærileg hús og Bakki byggði við Snæfríðargötu 1, 3, 5, 7 og 9 í Helgafellshverfinu árið 2018. Einnig erum við byrjaðir á sökklum að 8 íbúða, 2ja hæða húsi við Liljugötu 5. Þar verða fjórar 50 m2, 2ja herbergja íbúðir og fjórar 69 m2 3ja herbergja íbúðir.
Eftir Halldor Stefansson 04 Apr, 2020
Í lok mars sl. hófust framkvæmdir hjá okkur við áfanga IV í Helgafellshverfi. Næstu tvo mánuði verða strákarnir hjá VGH ehf að vinna í gatnagerð við Skammadalsveg og fyrsta áfanga við Liljugötu. Við gerum svo ráð fyrir að byrja á sökklum að fyrstu tveimur húsunum við Liljugötu 5 og 7 í lok maí nk. Þar munum við reisa tvö 5 íbúða hús með 2ja og 4ra herbergja íbúðum, sambærilegum þeim sem við byggðum við Snæfríðargötu 1-5.
Eftir Halldor Stefansson 02 Apr, 2020
Í október 2018 hófust framkvæmdir við tvö 12 íbúða fjölbýlishús með smáíbúðum til útleigu við Þverholt 21-23 í Mosfellsbæ. Fjórar íbúðir eru á hverri hæð og er stærð íbúðanna 41-45 m2, 2ja herbergja íbúðir. Íbúðirnar verða leigðar út á almennum markaði og verða til afhendingar í júlí og ágúst 2020.
Share by: